Margir gestir Byggðasafnsins í Görðum á Akranesi og starfsfólk hafa upplifað allskonar óhuggnaleg atvik sem ekki er hægt að skýra með eðlilegum hætti. Atburði sem hafa hrætt fólk svo mikið að það hefur aldrei stigið fæti þangað inn aftur. Haldið er á Byggðasafnið í Görðum á Akranesi í lítið hús sem heitir Neðri Sýrupartur í öðrum þætti Draugasagna á Hringbraut. Í þætti kvöldsins fara Katrín og Stefán út fyrir borgarmörkin og fjalla um hús sem annálað er fyrir reimleika og sýna áhorfendum ótrúleg sönnunargögn sem þau telja sig hafa fundið.