Benedikt virðist hafa komið vel undan aðgerðinni en þegar hann ætlar að tilkynna fjölskyldunni um tilvonandi brúðkaup þeirra Ólafar stela Sigríður og Luis þrumunni. Hjónaband Hjalta er í uppnámi þökk sé Kristjáni kvennabósa og yfirmanni. Björn og Ösp fá óvænta heimsókn sem snýr lífi þeirra á hvolf.
Benedikt reynir að finna leið til að giftast Ólöfu sem allra fyrst og bregður á það ráð að sameina brúðkaup þeirra, Sigríðar og Luis. Björn leggur sig fram við að vera ofurpabbi fyrir nýju dóttur sína á meðan Ösp byrjar upptökur á nýjum sjónvarpsþætti með áhrifavaldinum Óla Briem.
Í óþökk Aspar fer Björn með Sísí á fótboltaæfingu sem endar með ósköpum. Ösp gerir Óla að trúnaðarvini og samband þeirra styrkist. Benedikt fær sig ekki til að segja neinum frá hversu stutt hann á eftir. Á meðan valtar Sigríður yfir Ólöfu í brúðkaupsundirbúningnum.
Samband Björns og Aspar stendur á brauðfótum. Hjalti fær sig fullsaddann á framhjáhaldi Gunnu og tekur til sinna ráða. Heilsu Benedikts hrakar.
Eftir afdrífarík gæsa- og steggjapartý rífast Björn og Ösp heiftarlega. Ólöf fær loks nóg af yfirgangi Sigríðar og Luis og hellir sér yfir þau. Benedikt leysir frá skjóðunni og tilkynnir öllum að hann eigi stutt eftir.
Brúðkaupsdagurinn er runninn upp, en mun einhver gifta sig?