Home / Series / Prison Shift / Aired Order /

All Seasons

Season 1

  • S01E01 Episode 1

    • September 27, 2009
    • Stöð 2

    Þegar við skildum við þá þremenninga, Georg, Daníel og Ólaf Ragnar, var Georg leiddur burt í handjárnum eftir að ljóst var hver þáttur hans var í hvarfi Guggu hótelstýru í Bjarkalundi. Fangavaktin hefst þegar þeir Georg og Daníel hefja afplánun en Ólafur Ragnar gerir sér enn og aftur vonir um skjótfenginn gróða og glæstan frama á nýjum starfsvettvangi sem eldhress fasteignasali. En til að gera langa sögu stutta veit Ólafur Ragnar ekki fyrr en hann hefur komið sér í tómt klandur og sameinast því enn og aftur félögum sínum í fangelsinu.

  • S01E02 Episode 2

    • October 4, 2009
    • Stöð 2

    Daníel uppgötvar að hann er kominn í meiri vandræði en hann átti von á gagnvart Ingva á meðan Georg festir sjálfan sig betur í sessi sem deildarformaður.

  • S01E03 Episode 3

    • October 11, 2009
    • Stöð 2

    Ólafur sleppur með skrekkinn eftir ránstilraunina og reynir í kjölfarið að klára díl aldarinnar. Á meðan þarf Daníel að kljást við einelti af hálfu samfanga sinna og Georg reynir að finna leið til að komast á flokksþing Vinstri grænna.

  • S01E04 Episode 4

    • October 18, 2009
    • Stöð 2

    Georg hefur loksins náð takmarki sínu og þríeykið af bensínstöðinni á Laugaveginum er nú sameinað á ný. Ólafur kemst að því að hann hafði ranghugmyndir um fangelsi á meðan Daníel leiðir hann um sali Litla-Hrauns.

  • S01E05 Episode 5

    • October 25, 2009
    • Stöð 2

    Georg berst fyrir því að fá fræðasetur í hans nafni. Daníel neyðist til að brjóta gegn samvisku sinni til að rétta af skuld sína við Ingva og Ólafur styrkir vináttuna við Þröst Hjört.

  • S01E06 Episode 6

    • November 1, 2009
    • Stöð 2

    Eftir hungurverkfallið fær Georg loksins fræðasetrið sitt og virkjar allt fangelsið í uppsetningu þess. Daníel á hinn bóginn fær að fara í bæjarferð á meðan Ólafur hittir pabba sinn aftur.

  • S01E07 Episode 7

    • November 8, 2009
    • Stöð 2

    Það er aðfangadagur og Daníel, Georg og Ólafur þurfa að taka á honum stóra sínum til að halda uppi jólastemmningunni. Brúðkaup, gleði, sorg og Bubbi Morthens sameina krafta sína í að gera eftirminnileg jól á Litla hrauni.

Additional Specials

  • SPECIAL 0x1 Fangavaktin: Þetta eru engin geimvísindi

    • November 15, 2009
    • Stöð 2

    Ómissandi heimildar- og skemmtiþáttur um tilurð Næturvaktar, Dagvaktar og Fangavaktar. Í þættinum skyggnumst við á bak við tjöldin, viðtöl við helstu leikara, leikstjóra, framleiðanda og síðast en ekki síst við fjöldamarga gestaleikara og þekktar persónur úr mannlífinu sem með einum eða öðrum hætti hafa komið að þessum vinsælu þáttum.

  • SPECIAL 0x2 Upprifjun

    • November 22, 2009
    • Stöð 2

    Sérstakur þáttur af Fangavaktinni sem inniheldur brot af því besta úr þáttaröðinni.