Home / Series / Felix & Klara / Aired Order /

All Seasons

Season 1

  • S01E01 Gömul úlpa

    • October 5, 2025
    • RÚV

    Hjónin Felix og Klara eru eldri borgarar sem búa í rótgrónu hverfi. Þau eiga þrjú börn og þó nokkur barnabörn sem Felix þekkir illa í sundur. Þegar heilsu Klöru hrakar tekur fjölskyldan ákvörðun um að tími sé kominn á breytingar – eitthvað sem Felix er mjög ósáttur við.

  • S01E02 Gettó fyrir gamalmenni

    • October 12, 2025
    • RÚV

    Felix og Klara selja húsið sitt og flytja í þjónustuíbúð fyrir aldraða. Klara kynnist fljótt hressum nágrönnum þeirra en Felix lendir upp á kant við allt og alla.

  • S01E03 Ökuréttindi

    • October 19, 2025
    • RÚV

    Felix lokar augunum fyrir áfengisneyslu Klöru og reynir að finna sér ný verkefni með slæmum afleiðingum.

  • S01E04 Læknamistök

    • October 26, 2025
    • RÚV

    Klara ræðir við Felix um nándarleysi þeirra og vill að þau stundi aftur kynlíf eins og aðrir í kringum þau. Þegar nágranninn Reynir daðrar við Klöru ákveður Felix að gera eitthvað í málunum.

  • S01E05 Fordómar

    • November 2, 2025
    • RÚV

    Barnabarn Felix og Klöru fær bílinn þeirra lánaðan á meðan hjónin fara með rútu í kórferðalag á Sólheima í Grímsnesi. Felix hefur svo miklar áhyggjur af bílnum að hann er andlega fjarverandi alla ferðina.

  • S01E06 Þorramatur

    • November 9, 2025
    • RÚV

    Þegar Klara vill losna við borðspilasafn sem fyllir geymsluna þeirra fær Felix þá hugmynd að útbúa spilasal í húsinu og safnar enn fleiri spilum, Klöru til mikillar mæðu. Felix er ósáttur við matinn í mötuneytinu og ákveður að gera þorramat með skelfilegum afleiðingum.

  • S01E07 Afmæli

    • November 16, 2025
    • RÚV

    Klara liggur á spítala eftir slys á heimilinu og Felix er einn og eirðarlaus heima á meðan, ófær um að sjá um sig sjálfur. Hann ákveður að útbúa veislu í tilefni af afmælinu sínu en dagurinn þróast ekki eins og hann hafði vonað.

  • S01E08 Fíkn

    • November 23, 2025
    • RÚV

    Klara reynir að ræða hjónabandið við Felix við litlar undirtektir. Á sama tíma skipuleggur fjölskyldan inngrip vegna áfengisneyslu hennar.

  • S01E09 Lélegar merkingar

    • November 30, 2025
    • RÚV

    Heimilið er í óreiðu og Klara neitar að koma heim í óbreytt ástand. Felix þrjóskast við en grípur að lokum til aðgerða til að koma til móts við Klöru með ófyrirséðum afleiðingum.

  • S01E10 Klósett

    • December 7, 2025
    • RÚV

    Það líður að því að Klara komi heim af spítalanum og fjölskyldan þrýstir á Felix að horfast í augu við meðvirkni sína.