Snorri Helgason og Bergur Ebbi fíla lagið Láttu þér líða vel og setja það í samhengi við tísku og tíðaranda. Þetta sívinsæla lag eftir Grétar Örvarsson og Aðalstein Ásberg Sigurðsson er að finna á plötunni Tvö líf sem Stjórnin sendi frá sér 1991. Leikstjórn: Allan Sigurðsson.
Snorri Helgason og Bergur Ebbi fíla lagið Þrek og tár í flutningi Erlu Þorsteinsdóttur og Hauks Morthens sem gefið var út 1958. Lagið er upphaflega sænskt, samið af tónskáldinu Otto Lindblad, en textinn er ljóð eftir Guðmund Guðmundsson skólaskáld. Farið er yfir sögu lagsins og áhrif þess á menningu og sjálfsmynd þjóðar. Leikstjórn: Allan Sigurðsson.
Írafár kom eins og stormsveipur inn í íslenskan tónlistarbransa í kringum aldamótin. Snorri Helgason og Bergur Ebbi fíla stórsmell hljómsveitarinnar, Fingur, eftir Vigni Snæ Vigfússon og Birgittu Haukdal, og kryfja hann til mergjar í bland við umræðu um hártísku og vinsæla núðlurétti. Leikstjórn: Allan Sigurðsson.
Bergþóra Árnadóttir söngvaskáld samdi og flutti mörg lög sem hafa lifað með þjóðinni. Eitt þeirra, Verkamaður, sem upphaflega kom út á plötunni Eintak árið 1977, var samið við vinsælt ljóð Steins Steinarrs frá 1934. Snorri Helgason og Bergur Ebbi fíla lagið og fara yfir sögu lagsins og þá merkilegu tengingu sem það hefur við íslenska þjóðarsál. Leikstjórn: Allan Sigurðsson.
Stólparnir tveir í íslenskri útgeislun, Egill Ólafsson og Diddú, hafa gert margt saman í gegnum tíðina en sjaldan hefur öðrum eins hæðum verið náð í stemningu og í lagi Egils, Það brennur, sem kom út á sólóplötu hans, Tifa tifa, árið 1991. Snorri Helgason og Bergur Ebbi fíla lagið í allri sinni dýrð og við sögu koma íslenski hesturinn, gosbrunnar og sérsmíðaðar innréttingar. Leikstjórn: Allan Sigurðsson.
Hið sívinsæla lag, Hvers vegna varst' ekki kyrr, eftir Jóhann G. Jóhannsson er tekið fyrir. Stórsöngvarinn Pálmi Gunnarsson söng lagið inn á samnefnda plötu árið 1980. Snorri Helgason og Bergur Ebbi fjalla um lagið og Pálma sjálfan í ljúfri og öruggri skyldufílun og setja vinsældir þess í samhengi við þróun byggðamála og fleiri mikilvæga þætti íslensks þjóðlífs. Leikstjórn: Allan Sigurðsson.
Snorri Helgason og Bergur Ebbi fíla þjóðlagið Nú vil ég enn í nafni þínu við sálm Hallgríms Péturssonar í útsetningu Hafliða Hallgrímssonar. Lagið er í útgáfu Hamrahlíðarkórsins frá 1993 undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Við sögu koma íslenska skammdegið, skólasund, Hockey pulver og strætisvagnar. Leikstjórn: Allan Sigurðsson.
Stórskotalið íslenskrar stemningar og sjöu-skaðræðis, Ðe lónlí blú bojs, er tekið fyrir. Smellur þeirra, Harðsnúna Hanna, eftir Gunnar Þórðarson og Þorstein Eggertsson, hefur lifað með Íslendingum í tæpa hálfa öld og það er ekkert lát á vinsældunum. Snorri Helgason og Bergur Ebbi fíla lagið og allt sem því fylgir. Leikstjórn: Allan Sigurðsson.
Í þessum þætti fíla Snorri Helgason og Bergur Ebbi lagið Sumarið er tíminn með hljómsveitinni GCD sem kom út á plötunni Svefnvana árið 1993. Við sögu koma kögur-leðurjakkar, tikkandi Essó-fánastangir, stafsetningin á gælunafni Rúnars Júlíussonar, heiti lækurinn í Nauthólsvík og margt fleira.
Á tímabilinu 2004-2006 voru fjögur hólf í hjörtum þjóðarinnar og þau voru frátekin fyrir þær Klöru, Ölmu, Steinunni og Emilíu sem skipuðu stúlknahljómsveitina Nylon. Þær áttu sviðið og nýttu ýmsa miðla svo sem raunveruleikaþætti, myndbönd og útitónleika til að næra þjóðina með tónlist sinni og útgeislun. Ekkert hnýtir þennan einstaka tíma betur saman en sambandsslitaneglan Losing a friend sem kom út undir lok tímabilsins, árið 2006. Við sögu koma marmaraflísar Verzlunarskólans, hugleiðingar um vináttuna og margt fleira. Fílun er framkvæmd af Snorra Helgasyni og Bergi Ebba. Með gæðastjórn fer Sandra Barilli.
Vögguvísan Bíum bíum bambaló hefur í árhundruð huggað myrkfælin börn á Bretlandseyjum og sveltandi stríðsekkjur í Ameríku auk þess að eiga sérstakan sess í íslenskri þjóðarsál. Sérstakt hólf í hjarta þjóðarinnar á einnig hljómsveitin Sigur Rós sem tók upp undraverða útgáfu af laginu fyrir kvikmyndina Engla alheimsins árið 2000. Textann samdi Jónas Árnason fyrir söngleikinn Þið munið hann Jörund, en sú útgáfa kom út árið 1970 undir nafninu Vöggusöngur Völu. Öll veröldin er undir í þessari fílun sem framkvæmd er af þeim Snorra Helgasyni og Bergi Ebba ásamt sérstakri aðstoð Söndru Barilli.
Fáir erlendir listamenn eru Íslendingum jafn kærir og Kim heitinn Larsen. Lögin hans hafa verið notuð við ýmis tilefni hér á landi, þar á meðal í dönskukennslu. Hér fíla þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi eitt þekktasta lag hins stórmynnta Dana, Papirsklip af plötunni Midt om natten frá 1983. Hér er öllu tjaldað til, það rignir eplaskífum og Sandra Barilli mætir með pylsur.
Árin upp úr 1980 voru mikið þroskaskeið á Íslandi. Mannlífið var enn að færast úr sveit í borg, úr ballöðu-hallærislegheitum í nýbylgju, frá SÍS yfir í Sísí. Ragga Gísla hjálpaði okkur í gegnum þetta, með söng sínum, útgeislun og framtíðarskyggni. Til fílunar er nú eitt þekktasta lag hennar, Hvað um mig og þig? Tékkheftis-negla úr rassvasa Magnúsar Eiríkssonar sem kom út á plötu Magnúsar Smámyndir árið 1982. Snorri Helgason og Bergur Ebbi greina hér lagið sem aldrei fyrr, kryfja stemningu óðaverðbólguáranna og fíla að lokum lagið undir dyggri stjórn Söndru Barilli.
Fáir listamenn hafa lagt jafnmikið inn í þroskasögu íslensku þjóðarinnar og Páll Óskar. Sem tónlistarmaður, aðgerðasinni og mannvinur hefur hann verið skrefi á undan og með víðari sýn en við hin, og miðlað því með kærleika og gleði að vopni. Snorri Helgason og Bergur Ebbi fíla hér lagið Tókst með Páli Óskari af plötunni Seif frá 1996. Um er að ræða eitt af hans minna þekktu lögum, en þó með þeim mikilvægari. Sandra Barilli lítur við ásamt trommaranum Magnúsi Trygvasyni Eliassen.
Sveitin milli sanda, hin sígilda tónsmíð Magnúsar Blöndal Jóhannssonar frá árinu 1964, er löngu orðin að gersemi í hjarta okkar ungu þjóðar. Enda er lagið demantur í krúnudjásni ástsælustu söngkonu Íslands fyrr og síðar, sjálfrar Elly Vilhjálms. Þeir Fílalags-bræður Snorri Helgason og Bergur Ebbi kjölfíla hér lagið með öllu sem tilheyrir. Við sögu koma Land Roverar, Rússajeppar, eldhræringar og margt margt fleira. Sandra Barilli lítur við.
Þekktasta lagið úr söngleiknum Gauragangi, sem gerði allt vitlaust á Íslandi árið 1994, er ástleitna efasemdaballaðan Er hann sá rétti? Lagið, sem flutt er af Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur, er eftir Björn Jörund Friðbjörnsson nýdanskan sem leikur undir seiðandi sönginn með hljómsveit sinni. Textann samdi höfundur leikverksins, Ólafur Haukur Símonarson. Það má því segja að þrenns konar kjarnaefni sameinist í sprengjunni sem er til fílunar hjá þeim Snorra Helgasyni og Bergi Ebba. Við sögu koma meikdraumar íslenska músíkbransans, Hallærisplanið, Range Roverar, kraftgallar og margt margt fleira. Sandra Barilli stýrir fílun.