Er hægt að hringja sig inn geðveikan í vinnu? Í þessari sex þátta röð fjalla Steiney og Sigurlaug Sara um geðheilsu og greiningu á andlegri vanheilsu ungs fólks, en líkt og fjórða til fimmta hver manneskja á Íslandi hafa þær báðar glímt við andlegar áskoranir. Í þessum þætti er fjallað almennt um geðheilsu, sjálfsmynd, samfélagið, meðferð og úrlausnir.
Hver er munurinn á kvíða og kvíðaröskun? Glíma virkilega allir við kvíða? Steiney og Sigurlaug Sara kanna einkenni, áhættu og afleiðingar kvíðaröskunar. Þær ræða við sérfræðinga um lausnir, hjálpa yfirmanni sínum að komast yfir afmarkaða fælni og hitta nokkra frambærilega kvíðasjúklinga.
Er ekki bara fínt að vera með smá OCD? Í þessum þætti er fjallað um áráttu- og þráhyggjuröskun, eða OCD. Þekkingarleysi einkennir umræðu um röskunina, en hún er mun fjölbreyttar og flóknari en menn virðast halda. Við heyrum ótrúlegar sögur af lífinu með áráttu- og þráhyggjuröskun og leiðréttum algengar mýtur um sjúkdóminn.
Er hægt að lækna þunglyndi með því að fara út að hlaupa og borða hollan mat? Talið er að á hverjum tíma þjáist um fjögur til sex prósent þjóðarinnar af sjúklegu þunglyndi, eða um 12 til 18 þúsund manns. Við hittum Stefán Ingvar sem samdi uppistand um tilraunir sínar til að svipta sig lífi, ræðum við sálfræðing og kíkjum í boltaland með nokkrum þunglyndissjúklingum.
Átraskanir eru mikið samfélagsmein og jafnframt geðröskun sem oft er erfitt að bera kennsl á. Samfélagsmiðlar, staðalímyndir og útlitsdýrkun ýta undir brenglaða sjálfsmynd ungs fólks og átraskanir virðast verða æ algengari í hinum vestræna heimi. Stelpurnar kanna málið í þessum þætti, þar sem Sigurlaug Sara heimsækir sálfræðing, þær hitta aðgerðateymi Hvíta bandsins og halda matarboð með ungu fólki sem hefur glímt við átröskun.
Hver er munurinn á rétthugmyndum og ranghugmyndum? Þrír af hverjum hundrað einstaklingum fara í geðrof um ævina. Geðrofssjúkdómar eru flóknir og fjölbreyttir en undir þá skilgreiningu falla til dæmis geðklofi og geðhvörf. Stelpurnar ræða við fjóra einstaklinga sem eiga það sameiginlegt að hafa farið í geðrof, sérfræðinga og kíkja svo í innlit/útlit á Kleppi.