Það er í raun kraftaverk að Karen Axelsdóttir geti gengið á tveimur jafnfljótum hvað þá verið afrekskona í hjólreiðum. Karen sem er 44 ára gömul var kyrrsetumanneskju til 27 ára aldurs en þá byrjaði hún að hreyfa sig og hefur náð ótrúlegum árangri í þríþraut, náð besta árangri sem nokkur Íslendingur hefur náð í járnkarli og vann nánast allt sem hægt var að sigra í keppnishjólreiðum. Það eitt og sér er gríðarlegt afrek ekki síst þegar haft er í huga að í fjögur ár gat hún í orðsins fyllstu merkingu ekki haldið haus eftir alvarlegt slys.
Það kemur ekki af sjálfu sér að vera í fremstu röð í tvo áratugi. Guðjón Valur Sigurðsson segir frá lífshlaupi sínu og hugarfarinu sem kom honum þangað. Hann þakkar fyrst og fremst fjölskyldu sinni og fórnfýsi hennar árangurinn í gegnum tíðina í þessu einlæga viðtali.
Sigmar Guðmundsson ræðir við Erik Figueras Torras sem hefur búið á Íslandi í 20 ár og þekkir landið, þjóðareinkennin og íslenskuna betur en innfæddir.
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir var nýverið valin ein af 100 áhrifamestu konum heims hjá BBC fyrir baráttu sína fyrir réttindum transfólks. Hún er gestur Sigmars Guðmundssonar að þessu sinni.
Guðrún Dröfn Emilsdóttir uppgötvaði á fullorðinsárum að hún á systur og ættingja í litlum frumbyggjaættbálki í Bandaríkjunum. Í dag berst hún fyrir því að fá inngöngu í ættbálkinn. Sigmar Guðmundsson ræðir um það við Guðrúnu Dröfn.
Sigmar Guðmundsson ræðir við Jónas Sigurðsson tónlistarmann sem snéri við blaðinu og á nú í sífelldri baráttu við að bæta sig sem manneskju og láta gott af sér leiða.
Sigmars Guðmundsson ræðir við Falasteen Abu Libdeh sem flutti til Íslands frá Palestínu 16 ára gömul og þurfti að glíma við ýmsar hindranir til að geta brotist til mennta hér á landi.
Gestur Sigmars Guðmundssonar er Katrín Tanja Davíðsdóttir, tvöfaldur heimsmeistari í Crossfit. Hún segir frá ferli sínum og fórnunum sem þarf að færa til að vera í fremstu röð í heiminum.
Sigmars Guðmundsson ræðir við Auði Styrkársdóttur en hún segir frá Helga bróður sínum sem veiktist mjög alvarlega á geði fyrir um hálfri öld. Helgi fékk ekki meðferð við hæfi fyrr en hann flutti til Svíþjóðar þar sem hann hefur dvalið í áratugi.
Sigmar Guðmundsson ræðir við Tolla sem segir frá þeim leiðum sem hann hefur notað til að bæta líf sitt á sama tíma og hann hefur barist við tvo illvíga og bannvæna sjúkdóma.
Sigmar Guðmundsson ræðir við Kristínu Ýr Gunnarsdóttir en hún eignaðist dóttur sem er með Williams heilkennið. Það tók tíma að sannfæra sérfræðinga um að eitthvað amaði að og að ekki væri um þreytu eða fæðingarþunglyndi móður að ræða. Kristín upplifði vantraust í garð heilbrigðiskerfisins og segir að það skorti mikið upp á að einingar innan þess tali saman og taki betur utan um foreldra og börn sem eru í þessum sporum.
Gestur Sigmars Guðmundssonar er Hermundur Sigmundsson, prófessor í sálfræði, sem telur að íslensk börn séu tilraunadýr í menntakerfi sem sé á rangri leið.
Sigmar Guðmundsson ræðir við Steinunni Þóru Árnadóttur, alþingismann, um stjórnmálin, baráttu hennar við MS sjúkdóminn og óvæntar breytingar í fjölskyldu hennar.
Gestur Sigmars stendur í ströngu þessa dagana, en hann lýsir óvæntri vendingu í lífi sínu á þann hátt að hann hafi á fáeinum dögum farið úr því að vera í sóttkví að elda nautarif yfir í að stýra Covid19 göngudeildinni á Landsspítalanum. Ragnar Freyr Ingvarsson segir frá starfi sínu sem læknir við þessar kerfjandi aðstæður og ástríðu sinni fyrir mat því hann er einnig þekktur sem Læknirinn í eldhúsinu.
Sigmar Guðmundsson ræðir við Kolbrúnu Benediktsdóttur saksóknara, um skuggahliðar þeirra mála sem hún rannsakar og hvernig hún nýtir sára reynslu til að hjálpa öðrum.
Sigmar ræðir við Sigríði Torfadóttur Tulinius sem hefur búið í London undanfarin ár og er þar í hringiðu breskra stjórnmála. Hún stundaði nám í listaháskólanum hér heima og lærði myndlist en lífið tók u-beygju í hruninu. Hún fór í mastersnám í borgarhönnun og þaðan í lögfræði og starfar nú fyrir skoska þjóðarflokkinn á breska þinginu.
Sigmar ræðir við Loga Pedro Stefánsson sem hefur látið til sín taka í umræðu um rasisma og kynþáttahyggju hér á Íslandi. Þriggja ára gamall flutti hann hingað til lands frá Portúgal með angólskri móður, íslenskum föður og bróður sínum. 14 ára gamall var hann komin í hljómsveit sem varð ein sú vinsælasta hér á landi og spilaði víða um heim.
Sigmar ræðir við Karl Ágúst Úlfsson sem hlaut ásamt félögum sínum í Spaugstofunni Heiðursverðlaun Eddunnar í ár. Karl Ágúst er ekki einungis leikari heldur líka leikstjóri, þýðandi, höfundur, ljóðskáld, tónskáld, útgefandi og margt fleira. Hann ræðir ferilinn, skapandi hugsun, mannrækt, hlátur og bros í þætti kvöldsins.
Sigmar ræðir við Vigni Daðason sem segist vera heppin að vera á lífi eftir stutta en harða baráttu síðustu mánuði við krabbamein. Hann hefur einnig glímt við alkóhólisma og segir að báðir sjúkdómarnir hafi mótað hann mikið. Vignir ræðir reynslu sína og lífssýn auk þess sem hann fer yfir tónlistarferil sinn, sem hann gefur reyndar falleinkunn.
Sigmar ræðir við Margréti Kristmannsdóttur sem stýrir einu elsta fjölskyldufyrirtæki landsins. Hún glímir einnig við stam, sem hún óttaðist í fyrstu að yrði henni fjötur um fót en segir í dag að stamið sé henni þvert á móti styrkur. Hún hefur einnig talað fyrir bættu siðfreði í atvinnulífinu og vill að skorin verði upp herör gegn skattsvikum.
Sigmar ræðir við Steinþór Agnarsson sem greindist með heilbilunarsjúkdóminn Levibody fyrir tveimur árum. Einkennin eru svæsin, miklar ofskynjanir, Parkison, kvíði og alvarlegt þunglyndi og að auki er hann suma daga með skerta skynjun og hugsun og hegðun breytist. En Steinþór segir að lífið sé ekki búið þrátt fyrir þetta og reynir að njóta hvers dags á meðan hann getur.
Sigmar ræðir við Einar Þór Jónsson sem var fyrsti íslenski homminn sem greindi frá því opinberlega að hann væri HIV smitaður árið 1992. Hann horfði á eftir vinum sínum deyja og beið sjálfur dauðans í mörg ár á stöðugum flótta en HIV lyfin björguðu lífi hans. Hann er einnig brautryðjandi og baráttumaður sem lengi þurfti að berjast fyrir viðurkenningu og því að fá að tilheyra í samfélagi sem vildi frekar fordæma og útskúfa.
Sigmar ræðir við Sabine Leskopf sem á sér merkilega fjölskyldusögu. Afar hennar og amma létust í seinna stríði og fátæktin í kjölfar þess er kveikjan að því að Sabine nýtir allt sem hægt er að nýta. Fjölskyldusagan og flutningar á milli landa hefur kveikt mikinn áhuga á tungumálum og hversu mikilvægt er að geta tjáð sig á máli innfæddra til að komast áfram í samfélaginu. Og það hefur Sabine gert með því að vera málsvari innflytjenda og komast áfram í borgarpólitíkinni.
Sigmar ræðir við Egil Fjeldsted sem lamaðist frá brjósti eftir alvarlegt bílslys. Hann tók þá ákvörðun eftir slysið að líta á björtu hliðarnar og vera þakklátur fyrir að vera á lífi. Eftir endurhæfingu einbeitti hann sér að námi og lærði m.a. sagnfræði. BA ritgerðin í náminu endaði sem bók um krapaflóðin á Patreksfirði árið 1983 þar sem fjórir létust og mikið eignatjórn varð.
Helga Rakel Rafnsdóttir kvikmyndagerðarkona greindist á þessu ári með MND, sem er banvænn hreyfitaugasjúkdómur. Faðir hennar, tónlistarmaðurinn Rafn Ragnar Jónsson eða Rabbi, lést úr sama sjúkdómi 49 ára gamall árið 2004.
Kristjana Stefánsdóttir tónlistarkona eignaðist soninn Lúkas fyrir átján árum. Þegar hann fæddist og þangað til hann var sextán ára gamall taldi hún hann vera stúlku.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Baldvin Zophaníasson, betur þekktur sem Baldvin Z, var 12 ára þegar hann missti móður sína úr brjóstakrabbameini. Hann ólst jafnframt upp við flókið fjölskyldumynstur vegna misnotkunarmáls sem sundraði fjölskyldunni.
Gunnar Hilmarsson, fatahönnuður, tónlistarmaður, frumkvöðull og hvaðeina er gestur kvöldsins í Okkar á milli. Þó Gunnar sé jafnan með gnótt verkefna á sinni könnu hefur hann löngum gefið sér tíma til að vekja athygli á aðstæðum heimilislausra á Íslandi enda stendur málaflokkurinn honum nær.
Anna Lind Vega Borgþórsdóttir komst að því tíu ára gömul að faðir hennar væri ekki blóðskyldur henni. Fósturfaðir hennar lést þegar hún var enn ung og eftir að hafa huggað móður sína fór hún á stúfana að leita uppruna síns. Leitin hefur staðið í 48 ár. Sigurlaug Margrét ræddi við Önnu Lind.
Eysteinn Orri Gunnarsson sjúkrahúsprestur er gestur Sigurlaugar Margrétar. Hann ætlaði sér alls ekki að verða prestur, datt frekar í hug að fara í hagfræði eða lögfræði eins og systkini sín. En hann hlustaði á innsæið þrátt fyrir að hafa lært Faðirvorið vitlaust.
Þórhalla Arnardóttir, kennari, var stödd í Kraká með hóp af nemendum þegar hún fékk símtal um bróður sinn, fallhlífastökkvarann. Það hafði orðið hræðilegt slys. Sigurlaug Margrét ræddi við Þórhöllu um missi og góðar minningar.
Ástvaldur Zenki Traustason Ástvaldur Zenki Traustason segir að við mennirnir séum oftast of uppteknir af okkar eigin málum og huðarefnum til að heyra tungumál hjartans, sem talar þó til okkar öllum stundum. Ástvaldur er Zen munkur og einnig organisti í Bessastaðakirkju. Hann er gestur Sigurlaugar Margrétar í Okkar á milli
Gylfi Þór Þorsteinsson virðist alltaf vera í góðu skapi, en hann hefur lent í ýmsu og er tilbúin að segja sögu sína. Gylfi Þór umsjónamaður sóttvarnarhúsa er gestur Sigurlaugar Margrétar í Okkar á milli.
Peter fluttist til íslands þegar að ekkert sjónvarp var á fimmtudögum eða í júlí og það var ekki heldur hægt að að kaupa bjór. En hann var ástfanginn og ákvað að setjast hér að. Gestur Sigurlaugar Margrétar í Okkar á milli er Peter Salmon sem meðal annars kynnti okkur fyrir Trivial Pursuit.
Hanna Björg var orðin fertug þegar hún loks fann röddina sína og varð virkur femisti. Gestur Sigurlaugar Margrétar í Okkar á milli er Hanna Björg Vilhjálmsdóttir og kennir kynjafræði við Borgarholtsskóla.
Ólafur Stefánsson var atvinnumaður í handbolta og fólk elskaði að horfa á hann spila. Hann var eiginlega sonur þjóðarinnar. Óli Stef er gestur Sigurlaugar Margrétar í Okkar á milli.
Ragna Fossberg vann í sjónvarpinu í 50 ár, hefur unnið í yfir 30 bíómyndum og fengið sjö Eddur. Ragna er gestur Sigurlaugar Margrétar í Okkar á milli. Hún ætlar að tala um bransann og daginn sem hún náði í fæðngarvottorðið sitt.
Vilborg Arna Gissurardóttir hefur staðið upp á toppi Everest en segist ekki vera áhættusækin. Hún var í ofbeldissambandi í þrjú ár og telur mikilvægt að bæði gerendur og þolendur leiti sér aðstoðar. Vilborg er gestur Sigurlaugar Margrétar í Okkar á milli.
Erpur Eyvindarson á það til að hneyksla fólk og vera með kjaft, en í raun er hann kurteis drengur sem fékk menningarlegt uppeldi með áherlsu á andlegan auð. Erpur er gestur Sigurlaugar Margrétar í Okkar á milli og það er rætt um annað en romm.
Sóley Tómasdóttir, konan sem margir hafa reynt að þagga niður í er orðin vinsæl á Íslandi. Hún hjálpar fyrirtækjum að bæta vinnustaðamenningu. Fær borgað fyrir það að tala um það sem fólk hataði hana til að segja fyrir 10 árum, við ætlum að tala um umdeilda feminista. Sóley er gestur Sigurlaugar Margrétar í Okkar á milli.
Malín Brand, blaðamaður, hefur hlotið dóm og verið útskúfuð. En það var ekki í fyrsta skiptið sem hún upplifði útskúfun. Malín er gestur Sigurlaugar Margrétar í Okkar á milli.
Hann er eins og kötturinn, fer sínar eigin leiðir og leitar uppi ævintýri. Þegar banna átti lausagöngu katta á Akureyri leyst honum illa á. Snorri Ásmundsson er gestur Sigurlaugar Margrétar í Okkar á milli.
Bubbi Morthens er gestur Sigurlaugar Margrétar í Okkar á milli. Þau ræða meðal annars sumarið, veiðar, einmanaleika og æðruleysisbænina.
Guðni Gunnarsson þjálfari og heilræktarfrömuður er gestur Sigurlaugar Margrétar í Okkar á milli. Þau ræða hamingjuna, ábyrgð og sátt við lífið og annað fólk.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingkona Pírata, hefur rétt upp hönd alla ævi og hefur ávallt eitthvað til málanna að leggja. Hún fór í mannréttindalögfræði til að bjarga heiminum. Þórhildur er gestur Sigurlaugar Margrétar í Okkar á milli.
Jón Gunnar Geirdal er oft kallaður frasakóngur Íslands en hann er miklu meira en það. Sigurlaug Margrét ræðir meðal annars við hann um sköpunarkraftinn og sorgina.
Herdís Anna Þorvaldsdóttir er gestur Sigurlaugar í Okkar á milli. Hún varð fyrir lífshættulegri hnífaárás á heimili sínu. Þrátt fyrir það er hún ekki hrædd við neitt og ætlar að nýta auka lífið og fá sem mest út úr því.
Þorsteinn ætlaði að verða dramatískur leikari en endaði sem sálfræðingur þar sem hann aðstoðar fullorðið fólk við að vinna úr áföllum.
Það er sama hvernær áföllin verða í lífinu, einhverntímann þarf að gera þau upp. Sólveig Ólafsdóttir er gestur í Okkar á milli.
Hvað gerir handleggsbrotinn konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands? Jú, hann situr úti í sal og dásamar félaga sína. Hin glaðværa Sigrún Eðvaldsdóttir er gestur Sigurlaugar í Okkar á milli.
Þegar Aðalsteinn hrapaði niður 25 metra sprungu í Grænlandsjökli ákvað hann að hann ætlaði að lifa af. Tuttugu árum seinna mætti hann aftur á jökulinn og sagði jöklinum söguna. Aðalsteinn Árnason er gestur í Okkar á milli.
Hún var stödd í umferðinni og mundi ekki hvar hún var eða hvert hún var að fara. Þá vissi hún að eitthvað alvarlegt væri að. Kristín Þóra Haraldsdóttir leikkona er gestur í Okkar á milli.
Hann var kallaður hinn hvíti Pele þegar hann fór út í atvinnumennsku á sautjánda ári til Belgíu og segist hafa stundað slökun og hugleiðslu á milli leikja. Arnór Guðjohnsen er gestur í Okkar á milli.
Hún lagði inn lögmannsréttindin sín til að verða formaður Bændasamtakanna. Vigdís Häsler sem talar með norðlenskum hreim er gestur í Okkar á milli.
Lenya Rún er varaþingmaður Pírata. Hún glímir við átröskun og var föst í því að vera fullkomin. Viku eftir að hafa verið gestur í Silfrinu var hún lögð inn á Klepp. Lenya Rún er gestur í Okkar á milli.
Þegar Erla Bolladóttir fékk afsökunarbeiðni frá Forsætisráðherra upplifði hún í fyrsta skipti að vera laus úr haldi. Erla Bolladóttir er gestur í Okkar á milli.
Hann er bjartsýnn og hugarakkur og heldur óhikað áfram þrátt fyrir að vera í miðju sorgarferli. Nú er hann á enn einum vegamótum í lífi sínu. Einar Þór Jónsson er gestur í Okkar á milli.
Sterkar fyrirmyndir skipta Margréti miklu máli. Hún fær endalausarr hugmyndir og framkvæmir þær eiginlega allar. Margrét Jónsdóttir Njarðvík er gestur í Okkar á milli.
Hann er alltaf að flýta sér nema á stofugangi, þegar hjúkrunarfræðingunum finnst hann spjalla helst til lengi við sjúklingana sína. Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir er gestur í Okkar á milli.
Hann er listamaður á mánudögum og hina dagana vinnur hann sem sálfræðingur. Birgir Örn Steinarsson sálfræðingur og tónlistarmaður er gestur í Okkar á milli.
Hún er einhverf transkona og var lengi að leita að hamingjunni. Eva Ágústa Aradóttir er gestur Okkar á milli.
Hún var alin upp við það að þurfa að syngja rússneska þjóðsönginn á eftir þeim ungverska. Örlögin læddust að henni og hún hóf að kenna tónlist á Ísafirði. Nú er hún stjórnandi fjölda kóra á Íslandi. Gestur Okkar á milli er Agota Joó píanókennari.
Hún hefur alltaf verið sjálfstæð og ákvað að fara í lögfræði af því að hana vantaði nýja áskoru í líf sitt eftir að draumur hennar um að hafa atvinnu af motorcrossi brást. Gestur Okkar á milli er Brynja Hlíf Hjaltadóttir.
Hún ber marga titla. Hún er rithöfundur, baráttukona og transmamma. Hún segir að skömmin felist í þögninni. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir er gestur Okkar á milli.
Hann sættir sig við að vera uppáhalds rappari ömmu þinnar. Honum finnst lífið sitt fallegt og tekur einn dag í einu. Gauti Þeyr Másson er gestur Okkar á milli.
Hún segir að það sé gott að hafa skarpan heila, en mikilvægara að hafa gott hjarta. Guðrún Pétursdóttir lífeðlisfræðingur er gestur Okkar á milli.
Hann er leikskáld og hefur verið tilnefndur til Grímunnar sjö sinnum. Hann er annað hvort stilltastur eða óþekkastur. Gestur Okkar á milli er Tyrfingur Tyrfingsson.
Hún er mjúkur nagli og hefur breytt um kúrs í lífinu. Sigríður Ólafsdóttir, stýrimaður og skipstjóri, er gestur Okkar á milli.
Hún er alin upp við kaldhæðni og á erfiðum tímum kom fjölskyldan saman í gríni. Hún var 15 ára þegar pabbi hennar lést. Hann var besti pabbi í heimi og er ástæðan fyrir því að hún syngur í dag. Katla Þórudóttir Njálsdóttir, leikkona og söngkona, er gestur Okkar á milli.
Hann er þjóðþekktur leikari og þýðandi og segist vera ljónheppinn. Karl Ágúst Úlfsson er gestur Okkar á milli.
Hann sat sjálfur í fangelsi í 16 ár en berst nú fyrir réttindum fanga. Gestur Okkar á milli er Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu.
Hún flúði Súdan með þyrlu þegar hún vann hjá Læknum á landamæra. Nú á hún tíu vikna gamalt barn og tekur lífinu bara eins og það kemur. Gestur Okkar á milli er Lára Jónasdóttir.
Sonur hans barðist við eiturlyfjadjöfulinn þar til hann bugaðist. Hann hefur enn ekki fundist. Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson er gestur Okkar á milli.
Hann mælir tvisvar og sagar einu sinni. Gestur Sigurlaugar Margrétar í Okkar á milli er Ólafur Egill Egilsson. Hann ræðir meðal annars töfra leikhússins og mikilvægi þess að segja sögur.
Júlíus Júlíusson Júlíus Júlíusson fæddist í snjóstormi á Dalvík og vill hvergi annars staðar búa. Hann sá um fiskidaginn mikla í rúm 20 ár en hefur ákveðið að hætta. Gestur Okkar á milli er Júlíus Júlíusson.
Hún hefur engan áhuga á nútímanum og á meðan aðrir baka súrdeigsbrauð þá gerir hún Völvustafi. Vilborg Davíðsdóttir er gestur Okkar á milli.
Hún er umhverfissinni og baráttukona og finnst best að vera ein úti í náttúrunni þar sem hún fær að vera eins hún er. Veiga Grétarsdóttir Sulebust er gestur Okkar á milli.
Flosi Þorgeirsson Kvíðinn og þunglyndið eru gungur og fylgja honum aldrei upp á svið. Gestur Okkar á milli er Flosi Þorgeirsson.
Hann er prestur óháða safnaðarins og hann talar petrísku. Gestur Okkar á milli er Pétur Þorsteinsson.
Hún brennur fyrir réttindum barna og finnst skemmtilegra að tala um heimspeki en sjálfa sig. Gestur Okkar á milli er Salvör Nordal.
Fyrstu tvær mínúturna þegar hún vaknar eru verstar. Hún á það til að móðga fólk og hefur dreymt um að sérhanna hjúkrunarheimili fyrir adhd konur með svartan húmor. Gestur Okkar á milli er Anna Þóra Björnsdóttir sem finnst leiðinlegt að hafa það leiðinlegt.
Hann var orðinn leiður á því að vera einn í fjöldanum og flutti í Borgarnes. Gestur Okkar á milli er lífsglaður, en hræðilega stríðinn, og heitir Friðrik Ómar Hjörleifsson.
Öll börn eru óvissuferðalag. Hún á þrjá heilbrigða drengi einn þeirra er með aukalitning. Gestu Okkar á milli er Thelma Björk Jónsdóttir.
Hún var sendiherra í Svíþjóð og hefur verið í utanríkisþjónustunni í 50 ár sem sennilega er Íslandsmet. Gestur Okkar á milli er Estrid Brekkan.