Krakkarnir í hljómsveitinni æfa lagið Barfly með hljómsveitinni Jeff Who? Auk þess kynnumst við nokkrum af frægustu rokkhljómsveitum tónlistarsögunnar.
Krakkarnir flytja frumsamda lagið sitt með glæsibrag. Við fræðumst um bassann - sem er ómissandi hljóðfæri í rokkhljómsveit.
Krakkarnir flytja rokklagið Án þín. Ragnheiður hljómborðsleikari segir okkur fá hljóðfærinu sínu.
Krakkarnir semja sitt eigið lag. Við fræðumst um alls konar tegundir af rokki og Móri gítarleikari segir okkur frá því hvernig hann lærir á gítar.
Við kynnumst Matthíasi trommuleikara betur, fræðumst um hvernig á að undirbúa tónleika og heyrum frumsamda lag krakkanna sem heitir „Þetta er okkar jörð“.
Við kynnumst nýrri hljómsveit og fræðumst um ábreiður. Auk þess kynnumst við Sigga trommuleikara og heyrum flutning á laginu Húsavík.
Nýja bílskúrshljómsveitin okkar, Gulu Kettirnir hefjast handa við að semja sitt eigið lag. Við lærum nokkur vel valin orð sem notuð eru í tónlistarheiminum.
Hljómsveitin Gulu kettirnir heldur áfram að semja sitt eigið lag og flytur svo lokaútgáfuna.
Siggi trommuleikari segir okkur frá pönki og hljómsveitin flytur lagið Sísí fríkar út.
Aldís fræðir okkur um slagverk sem eru elstu hljóðfæri í heiminum. Krakkarnir semja svo lag með mismunandi slagverkum. Þau fá til sín sérstakan gest sem aðstoðar þau, slagverksleikarann Sigurð Ina Einarsson.
Hljómsveitin í Stundinni rokkar fjallar um ýmis tæki og tól sem hljómsveitir nota og við kynnumst henni Aldísi, söngkonu með meiru, aðeins betur. Hljómsveitin flytur ábreiðu af laginu 123 forever, eftir hljómsveitina Apparat organ kvartet.
Krakkarnir æfa og flytja lagið „Inní mér syngur vitleysingur“ með Sigur Rós, ásamt því að fjalla um frægar íslenskar hljómsveitir í útlöndum. Þá kynnumst við honum Hilmi Þór gítarleikara betur og hann segir okkur meðal annars frá hinni hljómsveitinni sinni.
Krakkarnir taka upp sína eigin útgáfu af laginu Zitti E Buoni, ítalska laginu sem sigraði Eurovision árið 2021. Þau fara næst með upptökuna í hljóðver, þar sem þau hljóðblanda eða mixa lagið, líkt og er gert með önnur lög sem gefin eru út.